Mikilvægasta bók sem ég hef lesið.

Í ljósi þess að nánast hvern einasta dag rignir inn fréttum af róttækum aðgeðum múslima vil ég segja að WHILE EUROPE SLEPT: HOW RADICAL ISLAM IS DESTRPYING THE WEST FROM WITHIN er einfaldlega eitthvað sem allir sem hafa áhyggjur af þróun mála verða að lesa.

Það má enginn halda að ég sé einhver rasisti, ég vildi svo innilega að við mannfólkið, hvort sem það er svart, hvítt, strangtrúað, trúleysingjar, menntað, ómenntað etc etc gætum lifað í sátt og samlyndi. EN PLANIÐ ER BARA EKKI ÞANNIG!!!.


Þvílíkur derringur

Hvað eru þessir vitleysingjar að þrýsta á okkur.

Það þarf að fella þennan skíta samning og Bretar og Hollendingar verða bara að átta sig á því að ábyrgðin liggur alveg jafn mikið þeim megin.

Það er ekki einsog nokkrum útibúum hafi verið sett upp og enginn vitað neitt, einhverjir samþykktu þetta allt fyrir hönd Breta og Hollendinga líka.

Og af hverju vill fólk ganga í ESB? Svo það verði hægt að ganga enn meira yfir okkur. 

Það er eins gott að VG standi sig og flokksmenn þar ákveði ekki að nauðga sannfæringu sinni líkt og formaðurinn gerði gagnvart aðildarumsókninni.

Lifið heil

 


mbl.is Þrýst á Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver eru tilgangurinn?

Mikil tíska er þessa dagana að stunda skemmdarverk á húsum auðmanna og annarra sem tengjast bankahruninu á einn eða annan hátt. Ég spyr bara: Hver eru tilgangurinn?

 Er það virkilega álit eggjakastarns að þetta muni hafa áhrif á gang mála? Það er ekki einsog Davíð bíði einhver svakalegur skaði af þessu, með öll þau laun sem hann er með. Sjálfsagt þekkir hann einhvern sem vill hjálpa honum með að ditta og lagfæra skaðann á mun minna verði en við almúginn þurfum að punga út.

 Þetta eru huglausustu aðgerðir sem hægt er að ímynda sér og til skammar. Svona á ekki að standa að málum.

 Mótmæli á Íslandi eru drephlægileg í besta falli. Þegar mótmælt var gegn virkjunum var hópur sem kallar sig Saving Iceland hvað mest í sviðsljósinu. Fáir vita að til þess að fá borgað(líkt og mótmæli væri orðin atvinnugrein)þurfti maður að láta handtaka sig. Og hvað gerðist......menn hlekkjuðu sig niður og létu öllum illum látum uns lögreglan sá sig nauðuga til þess að setja fólk í varðhald. Einn mótmælandi ákvað að klifra byggingarkrana og stofnaði þar með sjálfum sér og þeim sem á endanum þurfti að bjarga honum niður í talsverða lífshættu.

Mótmælin á Austurvelli eru líka gott dæmi. Nú hef ég verið þar alloft í góða veðrinu í sumar og hvergi bólar á fólkinu sem heimtaði nýja ríkisstjórn. Raddir fólksins hafa þagnað(eflaust hefur Hörður Torfa fengið nóg, enda góð kynning á bók hans að vera maður ársins).

Þetta sama fólk mætir ekki aftur af því það var svikið en það þýðir ekkert að gefast upp. Þessir svokölluðu fulltrúar okkar á þingi finna um leið lyktina af uppgjöf.

Eflaust er ég kominn langt útfyrir frétt um eggjakast en stundum verður manni heitt í hamsi.

En gaman þætti mér að sjá fólk aftur fyrir utan alþingishúsið og mótmæla af sannfæringu en ekki kasta eggjum í hús auðmanna sem elur ekkert af sér nema lúsarkostnað(sem þeir hlæja að) og litla blogggremju.

Lifið sæl


mbl.is Egg og níð á hús Davíðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning um að vakna og þefa af kaffinu...

Alls staðar rigna yfir okkur fréttir þar sem öfgafullir múslimar eru á ferð með sín djöfulverk. Reyndar veit ég ekki hvernig þessu máli háttar en ástandið er samt þess eðlis að talíbanar hafa hótað aðgerðum ef hlutirnir lagist ekki.

Erum við að fara sjá Kína verða fyrir hryðjuverkaárás? Aðeins tíminn mun leiða það í ljós.

 Tilgangur minn með þessum skrifum er sá að fólk sjái hversu mikil ógn róttækir múslimar eru nú í þessum heimi. Bandaríkin, Spánn, Indónesía og England hafa öll orðið fyrir árásum og ekki á meira en 8 árum. Ótal "minni" árásir hafa átt sér stað sem fjölmiðlar hafa ekki fyrir því að birta, nema þá í mýflugumynd(árásin á Jakarta var á bls.8 í fréttablaðinu sem dæmi).

 Heimurinn þarf að vakna ef værum blundi og átta sig á því að róttækir múslimar hafa fullan hug á að verða leiðandi afl í þessum heimi. Við fordæmum hvernig þeir koma fram við konur og fordæmum árásir þeirra en höldum svo bara áfram einsog ekkert sé.

Endilega lesið While Europe slept til að opna augu ykkar.


mbl.is Kínverjar segja 12 hafa verið skotna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuldur ársins?

Michael Owen ekki lengi að minna á sig. Hér verður á ferðinni einhver illkvittnasti stuldur sem Ferguson hefur staðið á bak við. Sýnir bara hvað kallinn er klár, stela uppöldum Liverpool manni fyrir framan nefið á öllum. Persónulega fannst mér skrítið hvað fá lið sýndu honum lítinn áhuga. Sýnir kannski hvað meiðslasagan hans hefur mikil áhrif.  Ef leikmaðurinn helst heilbrigður á hann eftir að blómstra læikt og hann gerði hjá Liverpool, Newcastle og (þrátt fyrir fá tækifæri) Real Madrid. Að sjálfsögðu óska honum áframhaldandi bata en vona að ég reynist hinn ósannspáasti þegar kemur að góðu gengi.
mbl.is Owen tryggði Manchester United sigur (myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband